Hollar og virkilega bragðgóðar brauðbollur úr lífrænum höfrum og spelti sem þú átt alveg örugglega eftir að elska. Það er virkilega einfalt og fljótlegt að smella í þessar bollur en nóg að hræra þeim saman í hefðbundinni skál og því óþarfi að óhreinka hrærivélina nema maður vilji það frekar.

Bollurnar eru þéttar og orkumiklar, dásamlega góðar með smjöri, osti og gúrkusneiðum.

Innihald:

Aðferð:

  • Setjið vatn í stóra skál ásamt gerinu og hrærið saman.
  • Bætið út í skálina hunangi, ólífu olíu og salti, hrærið saman.
  • Bætið þá út í höfrum og hörfræjum út í, hrærið. Bætið því næst speltinu út í, hnoðið öllu vel saman. Leyfið deiginu að hefast á volgum stað í 30 mín.
  • Kveikið á ofninum og stillið á 180°C, undir og yfir hita.
  • Skiptið deiginu upp í bollur, ég notaði stóra salatskeið, og setjið á smjörpappírsklædda ofnplötu.
  • Hrærið eggið saman í skál og penslið því svo yfir bollurnar, skreytið bollurnar með haframjöli.
  • Bakið í u.þ.b. 30 mín eða þar til þær eru byrjaðar að taka á sig gylltan lit og eru bakaðar í gegn.

Höfundur: Linda Ben