Þessi einfaldi og bráðholli hummus getur kryddað kalda daga og glatt bragðlaukana svo um munar. Hann passar vel með fersku grænmeti, hrökkkexi, nýbökuðu brauði. Njótið vel!
- 1 krukka kjúklingabaunir (með vökvanum) frá Muna
- 1 msk tahini frá Muna
- 1 – 1 1/2 msk akasíu hunang (byrjið á að setja 1 msk, bætið við meira ef ykkur finnst vanta) frá Muna
- 2 msk hnetusmjör frá Muna
- 3 msk ólífu olía frá Muna
- Salt
- Salthnetur og kókosflögur (skraut, má sleppa)
Aðferð:
- Allt sett saman í blandara og maukað þar til silkimjúkt.
- Setjið í skál, bæti örlítið af ólífuolíu ofan á hummusinn og ef þið viljið þá getiði skreytt hann með salthnetum og kókosflögum.
Höfundur: Linda Ben