Hér höfum við nokkrar bragðgóðar hugmyndir í heilsusamlegri kantinum sem upplagt er að bera fram á brunch borðið. Ljúffengar hafrakökur með hnetusmjörssúkkulaðikremi sem eru alveg dásamlega góðar.

Maískökusnitturnar eru afskaplega ljúffengar og einfaldar. Maður einfaldlega smyr litlar maískökur með rjómaosti og setur lax á þær, algjörar bragðsprengjur.

Chiagrauturinn er virkilega hollur, góður og falleg að setja hann í glös á fæti. Það er upplagt að gera hann kvöldið áður og leyfa honum að taka sig vel yfir nóttina, þá verður áferðin svo búðingsleg og góð.

 

 

Hafrakaka með hnetusmjörs súkkulaðikremi

Aðferð:

  • Kveikið á ofninum og stillið á 200°C.
  • Blandið saman haframjöli, möndlumjöli, matarsóda, salti og kanil.
  • Bræðið kókosolíuna og bætið henni út í hafrablönduna ásamt eggjum og vanilludropum, hrærið saman.
  • Setjið smjörpappír í 20×30 cm stórt form og hellið deiginu ofan í formið. Bakið í 20-25 mín. Kælið kökuna.
  • Setjið hnetusmjörið í skál ásamt agave sírópi og bræddri kókosolíu, hellið ofan á kökuna og sléttið úr.
  • Bræðið súkkulaðið og hellið ofan á hnetusmjörslagið, blandið því létt saman við hnetusmjörið til að fá fallegt mynstur.
  • Kælið kökuna inn í ísskáp í u.þ.b. 1-2 klst eða þar til súkkulaðið hefur harðnað.

 

Chia grautur með grísku jógúrti og ávaxtamúslí

Uppskrift miðast við 1 graut, margfaldaðu miðað við þann fjölda af grautum sem þú vilt gera.

Aðferð:

  • Setjið í skál chia fræ, haframjöl, kakónibbur, hreint kakó, hörfræ, hampfræ og blandið saman.
  • Bætið út á möndlumjólkinni og vanilludropunum og hrærið. Leyfið grautnum að taka sig í ca 1 klst.
  • Bætið grískri jógúrt út á ásamt haframúslíi, þurrkuðu bönunm og bláberjum.

 

 

Maískökusnittur með laxi

Aðferð:

  • Smyrjið maískökurnar með rjómaosti.
  • Skerið laxinn í þunnar sneiðar og raðið á kökurnar.
  • Toppið með möluðum svörtum pipar.

 

Annað sem borið var fram á brunch borðinu var:

 

Uppskriftir eftir Lindu Ben: www.lindaben.is 

Gleðilega páska og njótið