Þú getur kysst venjulega harfagrautinn bless því þessi súkkulaði kröns hafragrautur með mjúkri hnetusmjörsfyllingu er í alvörunni virkilega hollur og er stútfullur af góðri næringu, hann lítur bara alls ekki út fyrir að vera það 😅

Grauturinn heldur manni söddum langt fram eftir degi á sama tíma sem hann seðjar sætuþörfina.

Hann er líka miklu einfaldari en hann lítur út fyrir að vera. Maður einfaldlega mylur hafra og blandar saman við súkkulaði prótein, möndlumjólk og kakónibbur. Því næst blandar maður saman grískri jógúrt, hnetusmjöri og örlitlu agave sírópi. Svo toppar maður grautinn með bræddu dökku súkkulaði og kókosolíu.

Grautinn er upplagt að gera daginn áður (eða nokkrum dögum áður) og borða í morgunmat eða taka með sér sem nesti.

Innihald:

Aðferð:

  • Myljið haframjölið í blandara og setjið í skál ásamt próteini, chia fræjum, mjólk og kakónibbum. Hrærið saman þar til kekklaust og setjið í minni skál sem er hentugri til að borða upp úr, látið standa inn í ísskáp.
  • Í aðra skál blandið saman grísku jógúrti, hnetusmjöri og agave sírópi. Setjið varlega ofan í skálina með hafragrautnum, 1 tsk í einu, og sléttið varlega úr með bakhliðinni á skeið. Setjið inn í ísskáp.
  • Setjið kókosolíu og dökkt súkkulaði í skál sem má fara inn í örbylgju. Bræðið saman með því að setja inn í örbylgjuofninn u.þ.b. 30 sek í einu og hrærið vel á milli, hitið þar til bráðnað. Hellið varlega yfir jógúrt lagið og sléttið varlega úr. Setjið aftur inn í ísskáp og geymið í a.m.k. 30 mín.

Höfundur: Linda Ben