Þessar kókoskúlur eru ómissandi þegar manni langar í eitthvað sætt án hvíta sykursins.
Njótið vel!
Innihald:
- 20 döðlur frá MUNA
- 2 dl. grófir hafrar frá MUNA
- 1 msk. hampfræ frá MUNA
- 1 msk. kakóduft frá MUNA
- 1 dl. kókosmjöl frá MUNA
Aðferð:
- Byrjið á því að sjóða vatn og leggið döðlurnar í heitt bleyti í 5-10 mínútur en það mýkir döðlurnar og gerir þær ennþá meira ‘djúsí’.
- Á meðan döðlurnar liggja í bleyti skellið þið höfrunum og hampfræjunum í matvinnsluvél og blandið því saman í gróft duft.
- Bætið svo döðlunum við ásamt kakóduftinu og blandið saman í deig. Ef deigið er smá þurrt þá getið þið bætt við 1-2 msk. af heitu vatni.
- Rúllið deiginu upp í kúlur og veltið þeim upp úr kókosmjölinu.
- Kókoskúlurnar skal geyma inn í ísskáp en þær geymist einnig vel í frystinum.