Hér höfum við einstaklega góða múslíbita. Þeir minna óneytanlega á rice krispies kökurnar sem við flest öll þekkjum, nema talsvert hollari og henta því vel sem millimál, í nesti á ferðalaginu eða sem hollt nammi.

Þeir eru afar einfaldir að gera, maður smellir möndlusmjöri, agave sírópi, kókosolíu og dökku súkkulaði í skál, blandar saman. Smellir svo múslí út í og hrærið, útbýr kökur og smellir í frystinn. Þá eru þessir dásamlegu múslíbitar tilbúnir.

Innihald:

Aðferð:

  • Bræðið kókosolíu og dökkt súkkulaði yfir vatnsbaði.
  • Blandið saman möndlusmjöri, agave sírópi, kókosolíunni og súkkulaðinu í skál.
  • Bætið út í múslíinu út í og hrærið þar til allt hefur samlagast.
  • Setjið smjörpappír á disk eða ofnskúffu (ef hún kemst í frystinn) og útbúið kökur úr 2 tsk af deigi og setjið á smjörpappírinn, setjið í frystinn í amk klst eða þar til kökurnar hafa stirðnað. Sáldrið örlitlu sjávarsalti yfir.
  • Kökurnar geymast vel í ísskáp eða frysti.

Höfundur: Linda Ben