Hér höfum við alveg einstaklega góðan hafragraut sem inniheldur meðal annars bláber, banana, möndlur og auðvitað hafra. Hann er sætur og góður á bragðið án þess þó að innihalda neinn sykur.

Ég geri þennan graut reglulega fyrir son minn en hann er einn af þessum sem venjulega þolir ekki hafragraut, en hann alveg elskar þennan sem mér finnst segja mikið um ágæti þessa hrafragrauts.

Þegar ég geri þennan graut fyrir mig þá set ég yfirleitt kollagenduft út í hann til að fá auka prótein sem mér finnst mjög gott.

Þetta er mjög hollur grautur sem nærir líkama og sál og heldur manni söddum langt fram eftir degi.

Innihald:

Aðferð:

  • Setjið haframjöl í pott, saxið möndlurnar og bætið í pottinn.
  • Skerið 1/3 af banananum í sneiðar og bætið út í pottinn ásamt frosnum bláberjum, hampfræjum, hörfræjum, kanil, kollagendufti (ef þið viljið slíkt) og möndlumjólk. Hrærið öllu saman og leyfið að malla við lágan hita í örfáar mínútur þar til grauturinn hefur samlagast.
  • Setjið grautinn í skál og toppið með bananasneiðum, möndlusmjöri, ferskum bláberjum og jafvel aðeins meira af söxuðum möndlum.

Höfundur: Linda Ben