Hver elskar ekki að borða hollt sem er samt svo bragðgott að það er eins og maður sé að borða eitthvað óhollt ?

Eins og flestir orðið vita eru Chia fræ ein þau næringarríkustu fræ sem völ er á, bæði stútfull af vítamínum og omega fitusýrum. Því er tilvalið að byrja daginn á svona graut og fara stútfullur með tankinn inn í daginn af næringu og góðum trefjum. Þar sem Chia fræ hafa þann eiginleika að tífalda stærð sína þegar þau blandast við vökva, eru þau afar mettandi og halda manni söddum vel og lengi. Ég tala nú ekki um ef þið fáið ykkur lífrænt ræktað hnetursmjör, örfáar hnetur og svo ávexti með. Fullkomin og mettandi fæða á nokkrum mínútum.

Ef þið gerið fyrir nokkra daga getið þið margfaldað uppskriftina en þessi passar í tvo skammta. Svo er snilld að kippa með sér einni krukki í nesti fyrir vinnuna.

Ef krökkunum ykkar finnst þetta gott mæli ég líka algjörlega með að senda þau með svona í nesti í skólann, gæti ekki verið hollara.

 

HRÁEFNI

 

AÐFERÐ

  1. Byrjið á að blanda saman haframjólk, agave síróp, sítrónusafa og vanilludropum
  2. Setjið næst chia fræin út í og hrærið vel saman
  3. Látið standa í minnst 10 mínútur eða yfir nótt þess vegna, í kæli þá
  4. Setjið svo í botninn á krukku eitt lag af ristuðum kókósflögum (getið líka notað glas eða bara skál)
  5. Setjið svo eitt lag af sultu þar ofan á
  6. Setjið svo vel af Chiagrautnum yfir og toppið með hnetusmjörinu, hampfræjunum, hnetum, jarðaberjum, bláberjum og kakónibbum
  7. Spari set ég svo stundum nokkra bita af kókósbita súkkulaðistykkinu ofan á