Ef þig langar til að breyta til frá hefðbundna álegginu á brauðið þá mæli ég með að þú prófir þessa kjúklingabaunahræru, hún er alveg virkilega bragðgóð! Krydduð kjúklingabaunahræra er upplögð til fá sér í morgunmat eða hádegismat. Þetta er kjörin réttur til þess að “food preppa” en það er hægt að græja þennan rétt með miklum fyrirvara og hita svo upp þegar maður vill.

Það er hægt að aðlaga þessa uppskrift og gera hana vegan með mjög einföldum hætti, en maður skiptir þá parmesan ostinum út fyrir næringarger, þá er uppskriftin vegan.

Það tekur ekki nema um það bil 5 mínútur að græja þessa próteikríku, hollu og súper góðu uppskrift.

Innihald:

Borið fram með:

Aðferð:

  • Setjið kjúklingabaunirnar í skál og stappið þær gróft með gaffli/kartöflustappara/annað.
  • Bætið tahini út á skálina ásamt túrmeriki, hvítlaukskryddi, laukkryddi, pipar, salti, paprikukryddi og parmesan osti/næringargeri.
  • Steikið upp úr 1 msk af steikingarolíu þar til öll blandan er orðin heit í gegn og osturinn bráðnaður.
  • Ristið súrdeigsbrauðsneiðar og setjið kjúklingabaunahræruna ofan á ásamt klettasalati, kirsuberjatómutum og ólífu olíu.

Höfundur: Linda Ben