Hér höfum við léttan og bragðgóðan grænmetisrétt sem svíkur engan. Hann er afar einfaldur en maður eldar grænmetið í ofninum og sýður svo hrísgrjón. Næst setur maður hakkaða tómata og bakaða grænmetið í hrísgrjónin. Kryddar til og bakar svo aftur með osti. Rétturinn er svo borinn fram með ferskri basilíku, sítrónu olíu og parmesan.

Innihald:

Aðferð:

  • Kveikið á ofninum og stillið á 200°C, undir og yfir.
  • Sjóðið hrísgrjónin upp úr vatni þar til þau eru mjúk í gegn.
  • Skerið eggaldinið, paprikuna, rauðlaukinn niður og raðið á smjörpappírsklædda ofnplötu, raðið tómötunum einnig á pönnuna, rífið hvítlauk yfir, hellið olíunni yfir og dreifið einnig salti yfir. Bakið inn í ofni í u.þ.b. 15 mín eða þar til grænmetið er orðið mjúkt.
  • Setjið hrísgrjónin í eldfastmót ásamt niðursoðnu hökkuðu tómötunum, tómatmaukinu og tahini, blandið öllu vel saman. Kryddið með oreganó, rósmarín, basil, salti og pipar, blandið öllu vel saman. Dreifið grænum ólífum og mozzarella yfir og bakið í u.þ.b. 15 mín eða þar til mozzarella er byrjaður að bráðna.
  • Berið fram með ferskri basilíku, sítrónu olíu og parmesan.

Höfundur: Linda Ben