Þessi uppskrift er mjög þægileg og maður skutlar bara öllu í blandarann og tekur enga stund að græja. Þessar pönnukökur eru trefjaríkar og gefa góða og saðsama næringu. Þær eru einnig sykurlausar og mjólkurlausar og tilvaldar fyrir bæði börn og fullorðna. Gott að eiga auka skammt af þeim í frystir og henda í ristavélina seinna eftir þörf. Þær eru líka kjörin næring eftir góða æfingu þar sem þær innihalda flókin kolvetni og prótein.

Innihald:

  • 2 meðalstórir þroskaðir bananar
  • ½ bolli sykurlaus möndlumjólk
  • 1 ½ bolli fínir eða grófir hafrar
  • 2 tsk vínsteinslyftiduft
  • 3-5 dr vanillustevía
  • ½ tsk kanill
  • ¼ tsk salt
  • 2 egg

Aðferð:

  • Setjið öll innihaldsefnin í blandara og blandið þar til mjúkt, ca 30 sek til 1 mín.
  • Leyfið deiginu að sitja í blandaranum meðan þið hitið pönnuna.
  • Hitið pönnu á miðlungshita með smá kókósolíu og þegar pannan er orðin heit, setjið 1/3 af deiginu á pönnuna og eldið í 2-4 mín eða þar til pönnukökurnar eru orðnar tilbúnar.
  • Njótið t.d. með hnetusmjöri og banana eða súkkulaðiáleggi, jarðarberjum og rjóma.

Ásdís grasalæknir

www.grasalaeknir.is

www.instagram.com/asdisgrasa

www.facebook.com/grasalaeknir.is