Grísk flatbrauðspizza með fetaosti og spínati

Höfundur:
María Gomez, matarbloggari
https://paz.is/
Instagram:paz.is

 

Hér er uppskrift af pizzu sem er ekki bara til að hafa föstudags. Þessa myndi ég hafa hvaða dag sem er vikunnar og þess vegna á sunnudegi líka.

Pizzan er mjög einflöld og tekur ekki nema örstutta stund að henda í hana. Deigið þarf ekkert að hefast og því bara hægt að henda í hana og gera strax.

Ég notaði að sjálfsögðu vörurnar frá MUNA sem ég er talskona fyrir og elska að nota en ég hef notað þessar vörur í fjölda ára þá undir nafninu Himnesk Hollusta sem var og hét.

Olíurnar frá þeim eru einstaklega góðar og eru þær allar lífrænt ræktaðar. Kasjúhneturnar frá MUNA er einstaklega rjómakenndar og bragðgóðar og alveg fullkomnar með ofan á pizzuna til að gefa smá bit og sætt bragð á móti söltum fetaostinum. Ef þið elskið fetaost og spínat og allt sem er miðjarðarhafs þá eigið þið eftir að elska þessa pizzu sem er möst að toppa eftir á með hunangi og bera fram með gúrkujógúrtsósu. Hvað er betra en væn sneið af góðri pizzu löðrandi í osti ?

Hráefni

Botninn

270 gr fínt spelt frá MUNA

1 tsk fínt salt

1 msk hrásykur frá MUNA

1 msk vínsteinslyftiduft

350 gr grísk jógúrt

Álegg

150 gr spínat

200 gr fetaostakubbur (ekki í olíu ná vatni)

Rifinn Mozzarella eða ferskur mozzarella þið megið ráða (ég notaði rifinn í poka)

1 tsk sítrónusafi

2 hvítlauksrif

MUNA extra virgin ólífuolía

ferskt rósmarín

MUNA kasjúhnetur

Gróft salt

svartur pipar

Gúrku jógúrtsósa

350 gr grísk jógúrt

1 msk MUNA akasíuhunang

1/2 gúrka

1-2 tsk gróft salt

pipar

MUNA akasíuhunang til að setja á pizzuna eftir á 

Aðferð

Botninn

Setjið þurrefnin saman í skál og hrærið með skeið

  1. Bætið næst jógúrtinni út í og hrærið vel saman
  2. Setjið svo á borð með spelti ofan á og hnoðið og bætið við spelti eins og þarf þar til deigið hættir að klístrast við fingur og borð
  3. Fletjið deigið næst út með kökukefli en það má alveg vera smá þykkt og þarf að passa á pönnu
  4. Steikjið báðum megin á stórri grillpönnu eða steikarpönnu þar til það eru komnir brúnir flekkir í það eins og á flatbrauði
  5. Færið svo botninn á smjörpappír ofan á bökunarplötu en það má rúlla aftur yfir það hér með kökukefli og kremja það betur út svo það verði þynnra og stærra, ekki hafa áhyggjur ef það er hálfhrátt því það á eftir að fara í ofninn
  6. Setjið svo ólífuolíu yfir botninn ásamt hvítlauk sem er skorinn í örþunnar sneiðar og saltið með grófu salti yfir og stráið svo rifnum eða ferskum mozzarella osti í þunni lagi yfir (ekki of mikið)
  7. Setjið smá Muna ólífuolíu á pönnu og setjið svo spínatið út í heita olíuna og saltið og piprið
  8. Þegar spínatið er helmingi minna en það var setjið þá 125-150 gr (c.a hálfur kubbur) af fetaostinum ásamt sítrónusafanum út á og látið bráðna rétt svo saman
  9. Takið svo af pönnuni og dreifið jafnt ofan á pizzabotninn með olíunni og hvítlauknum og mozzarella ostinum á og dreifið smá meira af köldum fetaosti yfir ásamt ferskum rósmaríngreinum og kasjúhnetum
  10. Setjið svo smá meiri ólífuolíu yfir allt saman og stingið í 200 °C heitan ofninn með blæstri í 10-15 mín
  11. Berið svo fram með jógúrtsósunni og MUNA akasíuhunangi til að setja ofan á pizzuna en ég lofa það er rosa gott

Jógúrtsósan

  1. Meðan pizzan er í ofninum gerið þá sósuna
  2. Hrærið jógúrtina upp og setjið salt, pipar og hunang útí
  3. Raspið svo hýðið af hálfri gúrku út í og bara rétt innan við hýðið svo að sósan verði ekki blaut. Hún á að vera þykk
  4. Hrærið svo vel saman og geymið í kæli þar til pizzan er til og berið fram með henni

 

Muna að njóta!