Fylltar döðlur með hnetusmjöri

Höfundur:
Ásta Eats- Matarbloggari
Instagram:astaeats

 

Ef þú þarft eitthvað með kaffinu þá eru þessar sætu, fylltu döðlur svarið! Þessar döðlur eru fylltar með gómsætu hnetusmjöri og ekki nóg með það en þá eru þær líka hjúpaðar með heimalöguðu súkkulaði sem inniheldur … hvað haldið þið … ennþá meira hnetusmjör!

Innihald:

 

15-20 döðlur frá MUNA

6-10 tsk fínt hnetusmjör frá MUNA

 

Heimalagað súkkulaði

 

2 msk kókosolía frá MUNA (fljótandi)

2 msk kakóduft

1 tsk dökkt agave síróp frá MUNA

1 tsk fínt hnetusmjör frá MUNA

 

Aðferð:

Fyllið döðlurnar með hnetusmjöri ca. 1/4 – 1/2 tsk í hverja döðlu og skellið þeim inn í frysti í 10 mín. Á meðan gerið þið súkkulaðið.

 

Bræðið niður kókosolíu og hrærið í kakóduftið. Bætið svo sírópinu við og hnetusmjörinu og hrærið öllu vel saman.

 

Löðrið döðlunum í súkkulaði og stráið sjávarsalti yfir ef þið viljið.

 

Geymið döðlurnar inn í frysti og þið eruð tilbúin fyrir kaffiboðið hvenær sem er!