Höfundur:
María Gomez, matarbloggari
https://paz.is/
Instagram:paz.is

Ég elska hrákökur og hef verið dugleg að gera þannig kökur í gegnum tíðina. Hrákaka er kaka sem þarf ekki að baka. Þessi hér er alveg einstaklega góð og vel heppnuð.

Gulrótarterta með kasjúhneturkremi !! Hér eru engar dýraafurðir og því er hún líka vegan, mjólkur og eggjalaus.

Kakan er nánast 100 % lífræn. Hún er samt ekki bara fyrir þá sem eru vegan heldur fyrir alla sælkera sem elska góðar gulrótarkökur.

Hér býð ég upp á að ráða smá áferðinni á kökunni, ég vil hafa mína svona þunga í sér og blauta en ef þið viljið hafa hana meira þura þá sleppið þið að hafa ananas í henni. Kakan er hlaðin hollri fitu og er mjög næringarík, ég myndi segja að hún nálgist það að vera máltíð því hún er mjög metttandi og gefur góða seddu sem endist manni lengi.

 

HRÁEFNI

Botninn

  • 200 gr gulrætur
  • 300 gr MUNA döðlur
  • 1 pakki eða 250 gr MUNA valhnetur
  • 2 tsk vanilludropar
  • 2 tsk gróft salt
  • 1,5 tsk MUNA kanill Ceylon
  • 3/4 tsk engiferduft
  • klípa af negul
  • 1/2 bolli próteinduft að eigin vali (Ég notaði MCT próteinduft frá NOW með salted caramel)
  • 30 gr MUNA rúsínur
  • 1 lítil dós ananas í eigin safa (hella safanum af ekki nota hann, en ef þið viljið að kakan sé þurr en ekki blaut sleppið þið alveg ananasnum)
  • 20 gr MUNA kókosmjöl

 

Kremið

  • 1 pakki eða 200 gr MUNA kasjú hnetur
  • 1 dós kókosmjólk (nota bara þykka partinn)
  • 2 msk sítrónusafi
  • 3 msk MUNA agave síróp
  • 1 tsk vanilludropar
  • klípa af grófu salti

AÐFERÐ

Áður en þið hefjist handa þurfið þið að leggja kasjúhneturnar í bleyti í lágmark 30 mínútur í sjóðandi heitu vatni og döðlurnar líka en hafa það í sitthvorri skálinni. Á meðan er gott að setja dósina af kókosmjólkinni í kæli svo hún aðskilji sig

Botninn

  1. Byrjið á að setja útbleyttu döðlurnar án vatnsins í matvinnsluvél og mauka (takið svo og leggjið til hliðar)
  2. Raspið niður gulræturnar en ég setti þær líka í blandara eftir að ég raspaði þær en þið megið líka hafa þær bara raspaðar
  3. Setjið næst valhneturnar í matvinnsluvélina og malið í duft en ekki of mikið, takið úr og leggið til hliðar
  4. Setjið nú döðlurnar, hneturnar og gulræturnar ásamt vanilludropum, salti, próteindufti og kryddum í matvinnsluvélina, ef þið ætlið að nota ananas þá setjið þið hann hér út í líka án safans
  5. Maukið nú þar til er orðið að þykku mauki
  6. Takið nú úr matvinsluvélinni og setjið í aðra skál og hrærið rúsínunum og kókosmjölinu saman við með sleif
  7. Takið nú 19-24 cm smelluform og þjappið botninum í formið

Kremið

  1. Setjið útbleyttar kasjúhnetur í blandara (án vatnsins) ásamt sítrónusafanaum, agavesírópinu, vanillunni og saltinu
  2. Opnið dósina af kókósmjólkinni varlega og náið öllu þykka laginu sem er ofan á og setjið með í blandarann
  3. Setjið nú á fullan kraft og blandið þar til kremið er orðið silkimjúkt og kekkjalaust
  4. Hellið því svo ofan á kökuna í forminu og skellið í frystir í eins og 2 klst lágmark
  5. Takið svo kökuna úr frystir 1 klst áður en á að borða hana og skreytið hana ef þið viljið með hnetum og gulrótum og blómum þess vegna.
  6. Geymið svo í kæli það sem eftir er