Grillaður laxaborgari með fetaosta-hvítlauksjógúrtsósu

LAX

Höfundur:
María Gomez, matarbloggari
https://paz.is/
Instagram:paz.is

 

Borgarinn er afar einfaldur í framkvæmd. Mikilvægt að byrja á að setja í
góða marineringu og hræra í holla góða sósu með. Laxinn þarf einungis að marinerast í 30 mínútur áður en hann fer á grillið.

Með borgaranum ber María fram ferskan grillaðan aspas sem er súper
auðvelt að gera, hún penslar hann með sítrónuolíunni frá MUNA, saltar, piparar og svo stráir smá parmesan yfir að lokum.

Leynihráefnið í marineringunni er sítrónuólífuolían góða frá MUNA en hvað er betra með laxi en ljúfur sítrónu keimur.
Marineringin er í senn sæt og sölt en þar spilar góða blómahunangið frá MUNA sinn sess með sínu djúpa og góða hunangs bragði. Gott grill bragðið skín í gegn og hver biti er gómsætur að sögn Maríu.
Hún segir engann þurfa að hafa samviskubit því máltíðin sé hlaðin góðri næringu og vítamínum sem kroppurinn þarfnast. Hún notast við hefðbundið hvítt hamborgarabrauð en því má skipta úr fyrir grófara brauð en til er gott úrval af alls kyns grófum bollum sem nota má í staðinn. Aspasinn kemur svo í staðinn fyrir franskarnar en hún notaði afgangssósu til að dýfa honum í og segir það algjört lostæti.

Uppskriftin er fyrir fjóra.

HRÁEFNI

Marinering
1/2 dl sojasósa
1/2 dl blómahunang frá MUNA
1 dl vatn
1/2 dl sítrónuólífuolía frá MUNA
Börkur af einni sítrónu
1/2 tsk hvítlauksduft (athugið ekki hvítlaukssalt heldur Garlic Powder
eða hvítlauksduft)
1/2 tsk laukduft (Onion Powder)
Nokkrar chiliflögur en má sleppa
Gróft salt til að nota við grillið

 Fetaosta-hvítlauksjógúrtsósu
250 gr lífrænt ræktuð grísk jógúrt
65 gr fetaostakubbur án olíu
3-4 marin hvítlauksrif
Safi úr 1/2 sítrónu
1 tsk gróft salt
Svartur pipar
1/2 tsk cumin (athugið ekki kúmen eins)
1 msk Blómahunang frá MUNA
Ferskt Dill eftir smekk

Annað hráefni
1 stk laxaflak stórt
2 Avókadó
Lambhagasalat í potti
Ferskt Timian í potti eða klettasalat eða spínatkál ykkar er valið
Rauðlaukur
4 hamborgarabrauð eða grófar brauðbollur að eigin vali Eitt búnt af
ferskum aspas Sítrónuólífuolía Salt Pipar Parmesan ostur

AÐFERÐ

Marinering
Hrærið öllum hráefnum nema sítrónuberki saman í eldfast mót. Raspið svo
börkin af sítrónunni saman við, en passið vel að taka bara gula
partinn, alls ekki fara ofan í hvíta lagið því það er rammt á bragðið.
Skerið svo laxaflakið í 4 vænar sneiðar. Leggið hverja sneið með bleika
partinn á grúfu ofan í marineringuna og dreifið henni yfir allar
sneiðarnar. Látið standa í marineringunni upp á borði í minnst 30
mínútur (lengur ef vill en þá í kæli)

Fetaosta-hvítlauksjógúrtsósu
Hrærið jógúrtina upp í skál og blandið saman við hana hunangi,
kryddum, salti og pipar. Merjið hvítlauksrifin út í og hrærið vel saman.
Stappið næst fetaostakubbinn vel með gaffli og hellið saman við hann
sítrónusafanum meðan þið stappið. Bætið svo út í grískri jógúrt ásamt
smátt skornu dillinu og hrærið vel saman. Geymið í kæli meðan þið
grillið laxinn og útbúið restina af matnum

Matreiðsla og samsetning
Undirbúið nú aspasinn, takið af honum endann en það er gert með því að
beygja hann og þá brotnar endinn sjálfkrafa af sem á ekki að elda með
Setjið hann á fat og hellið sítrónuólífuolíu yfir hann og saltið og
piprið. Kveikið upp í grillinu og þegar það er heitt lækkið þá aðeins í
því og setjið þá laxinn á það með roðið niður og saltið með grófu
salti bara létt yfir. Pennslið á hann reglulega með marineringunni sem
er eftir í fatinu. Þegar laxinn er orðinn fallega bleikur inn að miðju
snúið honum þá niður á hvolf en gott er að setja hann þá á efri hillu
en ekki beint yfir hitann. Takið af þegar hann er búin að taka á sig
fallegan bleikan lit og passið að ofelda hann ekki. Gott er að setja
aspasinn á þegar um 5 mínútur eru eftir af laxinum en hann þarf c.a 5
mínútur á grillinu. Hitið hamborgarabrauð á grillinu ef þið viljið
Setjið fetasósu á neðra brauðið, næst kál og rauðlauk, laxinn þar ofan
á og avókadó. Setjið svo aftur sósu yfir allt og annað hvort ferskt  timian (alls ekki þurrkað), eða klettasalat eða Spínatkál og lokið svo með efra lokinu.
Raspið parmesan yfir nýgrillaðan aspasinn og berið fram.

Verði ykkur að góðu.